Opin Zumba partý og byrjendanámskeið
Þú verður hraustari, glaðari, hressari og skemmtilegri ef þú stundar Zumba í Dans og Jóga Hjartastöðinni. Partý, skemmtun, brennsla og gleði.
Zumba er fyrir alla sem vilja skemmta sér vel, dansa við góða tónlist og sleppa fram af sér beislinu.
Opin hádegispartý á þriðjudögum og föstudögum kl. 12:10.
Opin kvöldpartý kl. 18:45 á mánudögum og miðvikudögum (einnig í boði á Zoom)
Opin laugardagspartý kl. 11 (einnig í boði á Zoom)
Ef þú hefur aldrei prófað Zumba þá er upplagt að koma á byrjendanámskeiðin sem við höldum öðru hverju. Þá eru danstímar þar þú lærir sporin í rólegheitum og færð góð ráð sem hjálpa þegar komið er í opin partý. Gagnlegt og skemmtilegt námskeið.
Þegar þú er farin(n) að stunda Zumba þá nærðu jafnt og þétt betri tökum á sporunum og dönsunum. Þú ferð að þekkja lögin og veist hvaða spor kemur næst.
Þá er upplagt að að skoða sjö góð ráð sem hjálpa þér að fá enn meira útúr þessari skemmtilegu líkamsrækt og áhugamáli.