Dans & Jóga / Skilmálar

Almennt

Dans og Jóga áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis og/eða með tölvupósti.

Afhending vöru

Við kaup á námskeiðum og klippikortum verða til rafræn klippikort sem bíða þess að viðskiptavinir mæti í tíma og láti merkja við sig í afgreiðslu. Sé verið að kaupa gjafabréf er það afgreitt sérstaklega innan þriggja virkra daga eftir samkomulagi kaupanda og verslunar.

Gildistími korta

Öll námskeið og klippikort hafa sinn sérstaka gildistíma sem tekin er fram í lýsingu hverrar vöru. Klippikort gilda í 3 eða 6 mánuði frá kaupdegi en námskeið hafa misjafnan gildistíma. Mánaðarkort gildir í einn mánuð frá kaupdegi.

Forföll og endurgreiðsluréttur
Geti kaupandi ekki nýtt keypta vöru vegna eigin veikinda er hægt, gegn framvísun læknisvottorðs, að framlengja eða breyta gildistíma korta og námskeiða eða fá endurgreitt að fullu sé enginn kostur á að nýta síðar.

Verð
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara og öll verð eru birt með fyrirvara um villur.

Skattar og gjöld
Engin virðisaukaskattur er lagður á dansnámskeið.

Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Persónuverndarstefna

  • Dans og Jóga ehf leggur mikið upp úr því að tryggja öryggi persónuupplýsinga notenda.
  • Dans og Jóga ehf sér til þess að farið sé með allar persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 77/2000 um persónuvernd og úrvinnslu persónuupplýsinga.
  • Stefna Dans og Jóga ehf er að geyma og vinna með eins lítið af persónugreinanlegum upplýsingum og mögulegt er til að geta veitt þá þjónustu sem Dans og Jóga ehf ber að veita notenda.
  • Dans og Jóga ehf ábyrgist að nýta sér ekki upplýsingar um notendur á óábyrgan, óöruggan eða ólöglegan hátt.
  • Allar upplýsingar sem notendur okkar vefsvæðis láta Dans og Jóga ehf í té eða sem Dans og Jóga ehf sækir með þeirra leyfi til þriðja aðila eru eingöngu sóttar í þeim tilgangi að hægt sé að veita þeim þá þjónustu sem þeir eiga rétt á.

Alla Persónuverndarstefnuna má lesa hér

Greiðsluleiðir
Sé pantað og greitt í gegn um vefverslun Dans & Jóga fer greiðslan fram í gegn um örugga greiðslugátt Teya þar sem hægt er að greiða bæði með kredit og debet korti. Kortaupplýsingar kaupanda eru 100% öruggar í greiðslugátt Teya og koma aldrei fyrir augu starfsfólks Dans og Jóga.

Dans & Jóga ehf.

Almennt netfang: dansogjoga@dansogjoga.is
Netfang vegna reikninga: bokhald@dansogjoga.is
Kt: 521095-2109
VSK númer: 87288