Áslaug Erla Guðnadóttir hefur stundað Jóga með Theu um nokkurt skeið. Hún mætir einu sinni í viku í jóga tíma og kemur líka einu sinni í viku í Zumba. Þetta er upplifun Áslaugar af Jóga með Theu :
Jóga gefur mér kraft og kærleik, andlegan og líkamlegan styrk. Dásamlega tilfinningu að nýta í núinu, að vera til staðar og taka á móti. Frelsi og hamingju, vellíðan og hugarró.
Geng út með nýrri og betri líkama og fæ betri svefn á eftir. Jóga veitir mér ánægju með frábæru fólki og frábærum kennara.
Og um Zumba tímana hefur Áslaug Erla þetta að segja :
Zumba veitir mér gleði og styrk á líkama og sál, hjálp til að takast á við verkefni dagsins. Vellíðan og hugarró. Eintóma hamingju með frábærum kennurum og frábæru fólki á öllum aldri.
Við erum Áslaugu óendanlega þakklát fyrir að deila þessu með okkur og sérstaklega fyrir að koma alltaf til okkar því hún geislar af fegurð að utan sem innan.